1-2 Ég vil syngja um miskunn Drottins að eilífu! Ungir sem gamlir skulu fá að heyra um trúfesti þína. 3Elska þín og náð vara að eilífu og trúfesti þín stendur óhögguð eins og himinninn.
4-5 Svo segir Drottinn Guð: „Ég hef gert sáttmála við Davíð, minn útvalda þjón. Ég hef unnið þann eið, að afkomendur hans skuli sitja á konungsstóli héðan í frá og að eilífu!“
6Himinninn lofi máttarverk þín, Drottinn og herskarar englanna vegsami trúfesti þína. 7Því að hver á himnum kemst í samjöfnuð við Guð? Hinn mesti meðal englanna, hver er hann við hlið Drottins?! 8Hinir voldugu englar nálgast hann með ótta og virðingu. Hann er ægilegur í þeirra augum. 9Drottinn, þú konungur hinna himnesku hersveita, enginn kemst í samjöfnuð við þig! Trúfestin er einkenni þitt!
10Þú hefur hemil á ofstopa hafsins, stöðvar óveðursöldur. Með einu orði lægir þú þær. 11Þú rotaðir skrímslið, það lá marflatt – og tvístraðir óvinum þínum með undramætti. 12Himinninn og jörðin, allt er það þitt. Þú skapaðir það. 13Þú skapaðir norðrið og suðrið líka. Tabor og Hermon kætast, hin háu fjöll, sem hönd þín gjörði. 14Mikill er máttur þinn! Hægri hönd þín er upphafin í mætti og dýrð!
15-16 Tvær eru undirstöður hásætis þíns: Réttvísi og réttlæti, og miskunn og trúfesti eru fylgdarsveinar þínir. Sælir eru þeir sem heyra fagnaðarópið – þeir sem ganga í ljósinu sem stafar frá Drottni. 17Þín vegna gleðjast þeir alla daga og fagna yfir þínum réttlátu verkum. 18Þú ert styrkur þeirra. Þetta er undursamlegt! Já, við hressumst og gleðjumst því við vitum að þú hefur velþóknun á okkur! 19Sjálfur Drottinn er okkar vörn og hann, hinn heilagi í Ísrael – sjálfur Guð – hefur gefið okkur konung.
20Þú talaðir við spámann þinn í sýn og sagðir: „Ég hef fundið rétta manninn meðal fólksins, hann skal verða konungur! 21Það er Davíð, þjónn minn! Ég hef smurt hann minni heilögu olíu.
22Ég vil veita honum kraft og styrkja hann á göngunni. 23Óvinir hans skulu ekki fella hann, né illmennin kúga hann. 24Ég mun láta hann sjá er ég eyði óvinum hans og þurrka út hatursmenn hans.
25Ég mun stöðugt vernda hann og blessa og umvefja hann elsku minni. Mín vegna mun hann verða mikill. 26Ríki hans mun ná frá Miðjarðarhafi til Evfratfljóts. 27Hann mun segja við mig: „Þú ert faðir minn, Guð minn, klettur hjálpræðis míns.“
28Ég mun líta á hann sem frumgetinn son minn og gera hann fremstan meðal konunga jarðarinnar. 29Ég mun elska hann að eilífu og vera honum góður. Ég mun halda sáttmála minn við hann að eilífu. 30Hann mun aldrei skorta erfingja og hásæti hans mun standa um eilífð eins og himinninn. 31-33Ef afkomendur hans hafna lögmáli mínu og óhlýðnast mér, þá mun ég hegna þeim, 34en aldrei mun ég þó hætta að miskunna þeim, né bregðast loforði mínu. 35Nei, sáttmála minn mun ég alls ekki rjúfa. Ekkert orða minna tek ég aftur. 36-37 Ég hef heitið Davíð því (og hinn heilagi Guð talar sannleika) að konungsætt hans mun vara um aldir alda, já rétt eins og sólin! 38Konungdómur hans skal standa að eilífu eins og tunglið, – trúfasta vitnið á himninum!“
39En, – hvers vegna hefur þú þá útskúfað mér?! Hafnað þeim sem þú valdir til konungs? 40Hefur þú rofið sáttmálann við hann? Þú sem kastaðir kórónu hans í skítinn! 41Múra hans hefur þú brotið og rifið niður varnarvirkin. 42Allir vegfarendur ræna hann. Hann er til háðungar nágrönnum sínum. 43Þú magnaðir óvini hans gegn honum, og nú kætast þeir! 44Þú slóst sverð hans til jarðar og neitaðir honum um hjálp í bardaganum. 45Þú hefur bundið enda á vegsemd hans og hrint hásæti hans um koll. 46Hann lítur út sem öldungur þótt ungur sé, og það er af þínum völdum. Þú hefur hulið hann skömm.
47Ó, Drottinn, hve lengi á þetta ástand að vara? Ætlar þú að fela þig fyrir mér að eilífu? Hve lengi á reiði þín að brenna?
48Mundu hve mannsævin er stutt og að verk okkar flestra eru hégómleg og smá. 49Enginn maður lifir endalaust. Öll deyjum við að lokum. Og hver getur stigið upp úr gröf sinni?
50Drottinn, hvar er nú kærleikur þinn til mín? Hvar er gæskan sem þú lofaðir Davíð með eiði? 51Veistu það, Drottinn, að öll þjóðin hæðist að mér! 52Óvinir þínir spotta mig, manninn sem þú útvaldir til konungs.
53En þrátt fyrir allt og allt, sé Drottinn lofaður um eilífð! Amen, amen.