1-2 Himnarnir sýna okkur dýrð Guðs. Þeir eru þögull vitnisburður um mikilleik verka hans. 3Dagur og nótt vitna um vísdóm Drottins. 4-5 Hljóðlaust og án orða bera þau boðin um gervalla jörðina. Sólin fer sína braut um loftin – einmitt þá sem Drottinn setti henni í upphafi. 6Hnarreist siglir hún yfir hvolfið, geislandi eins og brúður í brúðkaupi eða hlaupari sem hlakkar til að renna sitt skeið. 7Sólin fer um himininn frá austri til vesturs, ekkert fær dulist við geislaflóð hennar og yl.
8-9 Lög Guðs eru fullkomin. Þau vernda og auka skilning, gleðja og lýsa. 10Lög Guðs eru eilíf, réttlát og hrein. 11Þau eru dýrmætari en gull. Þau eru sætari en hunang. 12Því að þau vara okkur við hættum og efla velgengni þeirra sem hlýða þeim.
13Hver verður var við syndina sem loðir við hjarta mitt? Hreinsa mig af leyndum syndum. 14Forða mér frá vondum mönnum, og stöðva hönd mína að ég geri ekkert ljótt. Sýknaðu mig af syndum mínum svo að ég lifi hreinu lífi.
15Ó, að orðin á vörum mér og hugsanir mínar geðjist þér, þú Guð, klettur minn og frelsari.