1-2 Drottinn, ekki refsa mér, þótt þú sért reiður. 3Örvar þínar standa í mér og hönd þín liggur þungt á mér. 4-5 Vegna reiði þinnar er ég sjúkur maður, heilsa mín er farin vegna synda minna. Syndir mínar líkjast flóði sem færir mig í kaf, eins og byrði sem ég kikna undan. 6-7 Ólykt leggur af sárum mínum – það er drep í þeim. Ég er ráðþrota vegna synda minna. Ég ráfa um í angist liðlangan daginn. 8Lendar mínar brenna af sviða og líkami minn er helsjúkur. 9Máttur minn er þrotinn og ég er örvæntingu nær.
10Drottinn, ég þrái bót á meini mínu! Þú heyrir kvein mín og andvörp. 11Hjartað hamast í brjósti mér, kraftar mínir búnir og sjónin dvín. 12Ástvinir mínir og góðir grannar forðast sjúkdóm minn og böl og frændur mínir eru á bak og burt.
13Óvinir mínir sæta færis að drepa mig. Liðlangan daginn sitja þeir á svikráðum, brugga mér banaráð. 14-15 En illráð þeirra verka ekki á mig! Ég virði þá ekki viðlits. Áform þeirra rætast ekki, 16því að ég vona á þig, Drottinn, Guð minn. Kom þú og vernda mig. 17Þaggaðu niður í þeim sem hlæja að óförum mínum.
18Ég er að falli kominn og angist mín er enn hin sama. 19Ég játa syndir mínar og iðrast þess sem ég hef gert. 20En ofsóknum óvina minna linnir ekki og heift þeirra minnkar ekki. Þeir hata mig án ástæðu. 21Þeir launa mér gott með illu, hata mig fyrir góðverk mín.
22Yfirgefðu mig ekki, Drottinn. Vík ekki frá mér! 23Komdu skjótt og hjálpaðu mér, þú frelsari minn!