1-2 Ó, Drottinn Guð, mikið er nafn þitt! Jörðin er full af dýrð þinni og himnarnir endurspegla mikilleik þinn.
3Þú hefur kennt börnum að lofsyngja þér. Fyrirmynd þeirra og vitnisburður þaggi niður í óvinum þínum og valdi þeim skömm.
4Þegar ég horfi á himininn og skoða verk handa þinna, tunglið og stjörnurnar sem þú hefur skapað – 5þá undrast ég að þú skulir minnast mannsins, láta þér umhugað um mannanna börn. 6Og líka, að þú lést manninn verða litlu minni en Guð! Krýndir hann sæmd og heiðri!
7Þú hefur sett hann yfir allt sem þú hefur skapað, allt er honum undirgefið: 8Uxar og allur annar fénaður, villidýrin 9fuglar og fiskar, já, allt sem í sjónum syndir. 10Ó, Drottinn Guð, hversu dýrlegt er nafn þitt um alla jörðina!