1-2 Æ, Drottinn! Ekki refsa mér í reiði þinni! 3Miskunnaðu mér því að ég örmagnast. Lækna mig, því að líkami minn er sjúkur. 4Ég er hræddur, veit ekki mitt rjúkandi ráð. Ó, Drottinn, reistu mig á fætur, og það fljótt!
5Komdu Drottinn og læknaðu mig. Bjargaðu mér í kærleika þínum. 6Því að ef ég dey, þá get ég ekki lengur lofað þig meðal vina minna. 7Ég er aðframkominn af kvöl. Hverja nótt væti ég koddann með tárum. 8Augu mín daprast af hryggð vegna illráða óvina minna.
9Farið! Látið mig í friði, þið illmenni, því að Drottinn hefur séð tár mín 10og heyrt grátbeiðni mína. Hann mun svara öllum mínum bænum. 11Óvinir mínir munu verða til skammar og skelfingin mun steypast yfir þá. Guð mun reka þá sneypta burtu.