1-2 Þú hirðir Ísraels sem leiðir þjóð þína eins og hjörð. Þú Guð sem situr á hásæti uppi yfir verndarenglunum, beygðu þig niður og hlustaðu á bæn mína. Láttu veldi þitt birtast í geisladýrð! 3Leyfðu ættkvíslum Efraíms, Benjamíns og Manasse að verða vitni að því er þú frelsar okkur með mætti þínum.
4Dragðu okkur til þín á ný, ó Guð. Líttu til okkar með velþóknun og kærleika, það er okkar eina von. 5Ó, Drottinn, þú Guð sem stjórnar hersveitum himnanna, hve lengi ætlar þú að draga bænheyrsluna og láta reiði þína haldast? 6Þú hefur alið okkur á sorg og sút 7og gert okkur að andstyggð í augum nágrannaþjóðanna sem hæða okkur og spotta.
8Drottinn hersveitanna, dragðu okkur til þín á ný. Líttu til okkar með velþóknun og kærleika, annars er úti um okkur. 9Þú fluttir okkur frá Egyptalandi eins og gæðavínvið, upprættir heiðingjana og gróðursettir okkur í landinu. 10Þú plægðir jörðina og braust landið, við skutum rótum og klæddum hæðirnar.
11Við skyggðum á fjöllin og breiddum úr okkur eins og greinar sedrustrésins, 12þöktum landið frá Miðjarðarhafi og allt til Evfrat. 13En nú hefur þú brotið niður múra okkar og eftir stöndum við varnarlausir. 14Landið hefur verið eytt og er nú orðið að bústað villidýra.
15Við biðjum þig, þú Guð hinna himnesku hersveita, komdu og blessaðu okkur. Líttu niður af himni, sjáðu þjáningar okkar og hlúðu að þessum vínviði þínum! 16Vernda það sem þú sjálfur gróðursettir, einkasoninn þinn! 17Óvinirnir lögðu okkur að velli og kveiktu í borgunum. Þeir farast fyrir augliti þínu! 18Styrktu manninn sem þú elskar, soninn sem þú valdir 19og við munum aldrei snúa við þér baki. Lífgaðu okkur á nýjan leik og þá skulum við ákalla þig.
20Drottinn, Guð hersveitanna, dragðu okkur til þín á ný. Líttu niður til okkar og láttu okkur sjá velþóknun þína.