1-2 Drottinn, þú hefur baðað land þetta blessun! Þú hefur snúið hlutunum Ísrael í hag 3og fyrirgefið syndir þjóðar þinnar, já, hulið þær allar! 4Reiði þína hefur þú líka dregið í hlé.
5Dragðu okkur nær þér svo að við getum elskað þig heitar, að þú þurfir ekki að reiðast okkur á ný. 6(Eða mun reiði þín vara að eilífu, frá kynslóð til kynslóðar?) 7Lífgaðu okkur við, þjóð þína, svo að við getum aftur lofað þig. 8Leyfðu okkur að njóta elsku þinnar og gæsku, ó Guð, og veittu okkur hjálp þína.
9Þegar Drottinn talar til þjóðar sinnar, hlusta ég vel, þegar hann ávarpar sinn útvalda lýð. Hann flytur okkur frið og velgengni þegar við snúum hjörtum okkar til hans. 10Vissulega njóta þeir hjálpar hans þeir sem hlýða honum og heiðra hann. Velgengni og blessun hans mun breiðast yfir allt landið. 11Miskunn og sannleikur munu mætast, réttlæti og friður kyssast! 12Trúfestin eflist á jörðu og réttlætið brosir frá himni! 13Drottinn blessar landið og það ber margfalda uppskeru. 14Réttlæti og friður fylgir Drottni.