1-2 Ó, Drottinn, frelsaðu mig frá vondum mönnum. Verndaðu mig gegn ofbeldismönnunum 3sem sitja á svikráðum alla daga og vekja ófrið. 4Orð þeirra eru eins og eitruð höggormsbit. 5Varðveittu mig gegn ofbeldi þeirra og svikráðum. 6Þessir ofríkismenn hafa lagt gildru fyrir mig, sett út snöru sína. Þeir bíða þess að geta kastað yfir mig neti, flækja mig í möskva sína.
7-8 Ó, Drottinn, þú ert minn Guð! Hlustaðu á grátbeiðni mína! Láttu ekki svikráð níðinganna heppnast. 9Láttu þá ekki ná árangri eða hreykja sér hátt. 10Svikráð þeirra komi þeim sjálfum í koll! 11Eldsglóðum rigni yfir þá. Steyptu þeim í gjár sem þeir komast ekki úr.
12Láttu lygara einskis ávinnings njóta í landi okkar, en refsaðu þeim í skyndi. 13Drottinn mun örugglega rétta hlut fólks sem þolað hefur ofsóknir þeirra, hann mun flytja mál hinna snauðu. 14Hinir guðhræddu þakka þér. Þeir fá að lifa í nálægð þinni.