1-2 Guð, vertu ekki þögull og afskiptalaus þegar við biðjum til þín. Svaraðu okkur! Já, bjargaðu okkur!
3Heyrirðu ekki skarkalann og ysinn í hópi óvina þinna? Sérðu ekki hvað þeir aðhafast, þessir hatursmenn þínir? 4Þeir eru með ráðagerðir um að tortíma þeim sem þú elskar! 5„Komum!“ segja þeir, „þurrkum út Ísrael, svo að þeir hætti að vera til og gleymist.“ 6Þetta var samþykkt af leiðtogum þeirra. Þessir undirrituðu sáttmála um að fylkja liði gegn almáttugum Guði: 7Ísmaelítar, Edomítar, Móabítar og Hagrítar. 8Einnig Gebalmenn, Ammon, Amalek, Filistear og Týrusbúar. 9Assýría hefur líka slegist í hópinn og gjört bandalag við afkomendur Lots.
10Farðu með þá eins og Midíansmenn forðum, já eins og þú fórst með Sísera og Jabín við Kíshonlæk 11og með óvini þína við Endór, en lík þeirra urðu að áburði á jörðina. 12Láttu höfðingja þeirra falla eins og Óreb og Seeb, foringja þeirra deyja líkt og Seba og Salmúna 13sem sögðu: „Leggjum undir okkur haglendi Drottins!“
14Þú, Guð minn, feyktu þeim burt eins og ryki, eins og hismi fyrir vindi 15– eins og skógi sem brennur til ösku. 16Flæmdu þá burt í óveðri, skelfdu þá með fellibyl þínum. 17Drottinn, láttu þá kenna á andúð þinni uns þeir viðurkenna mátt þinn og vald. 18Láttu öll þeirra verk mistakast, svo að þeir skelfist og blygðist sín 19og viðurkenni að þú einn, Drottinn, ert Guð yfir öllum guðum og að jörðin öll er á þínu valdi.