1-2 Þökk sé þér Drottinn! Máttarverk þín staðfesta umhyggju þína.
3„Já,“ svarar Drottinn, „og þegar stundin er komin mun ég refsa öllum illgjörðamönnum! 4Þótt jörðin nötri og íbúar hennar skjálfi af ótta, eru undirstöður hennar traustar, enda verk handa minna!“
5Ég sagði hinum hrokafullu að láta af drambi sínu og illmennunum að hætta sínum ögrandi augnagotum, 6að láta af þrjósku og hroka. 7Velgengni og völd getur enginn þakkað sér sjálfum, 8allt eru það gjafir frá Guði. Hann upphefur einn, en niðurlægir annan. 9Drottinn heldur á bikar fullum af freyðandi víni – það er dómurinn gegn illmennum heimsins. Þau skulu drekka hann í botn! 10En ég mun vegsama Guð um aldur og ævi. 11Styrkur hinna óguðlegu verður að engu, en réttlátir skulu ríkja með reisn.