1-2 Ó, veittu okkur miskunn þína og náð! Leyfðu okkur að sjá þig og kærleika þinn. 3Leyfðu öllum mönnum að fá að kynnast þér og þekkja hjálpræði þitt. 4Allar þjóðir skulu lofa Drottin. 5Þær skulu fagna og gleðjast, því að þú færir þeim réttlæti, og leiðir þær um réttan veg. 6Allur heimurinn lofi þig, ó Guð! Já, allar þjóðir í heiminum flytji þér þakkargjörð! 7-8 Því að uppskera jarðarinnar varð mikil og Guð, hefur blessað okkur ríkulega. Og hann blessi okkur áfram svo að allar þjóðir megi óttast hann og elska.