1-3Ó, Drottinn, hlustaðu á neyðaróp mitt, því að hópur af þorpurum og bófum hafa gert samsæri gegn mér. Verndaðu mig! 4Orð þeirra eru eins og rýtingur í bakið. Þeir hvæsa á mig og nísta hjarta mitt. 5-6 Þeir senda mér kaldar kveðjur úr launsátri, vinna verk sín í skyndi, eru hvergi smeykir. Þeir sitja á svikráðum. Hittast á laun og leggja gildrur fyrir aðra. „Þetta sér enginn,“ segja þeir. 7Þeir upphugsa ill verk og segja „Nú er allt klappað og klárt!“ Hjörtu þeirra fyllast illsku og svikum.
8En Guð mun slá þá til jarðar. Eins og hendi sé veifað hittir örin þá 9Tunga þeirra verður þeim að falli. Menn hrista höfuðið yfir þeim og 10ótta slær á alla. Þeir játa mikilleik Guðs og hans voldugu verk, gefa gætur að því sem hann gerir. 11En hinir trúuðu munu fagna í Drottni, leita hjálpar hans og hrósa sigri með honum.