1Sálmur eftir Davíð, 2ortur þegar menn frá Síf reyndu að svíkja hann í hendur Sál konungs.
3Komdu í mætti þínum, ó Guð, og bjargaðu mér! Verndaðu mig með krafti þínum! 4Bænheyrðu mig, 5því að ofbeldismenn hafa risið gegn mér – heiðingjar sem ekki trúa á þig, sækjast eftir lífi mínu.
6En Guð er minn hjálpari. Hann er vinur minn! 7Fyrir hans tilverknað mun illska þeirra koma þeim sjálfum í koll. Efndu loforð þitt, Guð, og þurrkaðu út þessa illvirkja.
8Glaður kem ég fram fyrir þig með fórn mína. Ég lofa nafn þitt, Drottinn, því það er gott.
9Guð hefur frelsað mig frá dauða og yfirbugað óvini mína.