1-2 Guð er mér hæli og styrkur, örugg hjálp í nauðum. 3Þess vegna óttumst við ekki, þótt heimurinn farist og fjöllin steypist í hafið. 4Hafið æði og freyði, fjöllin nötri og skjálfi!
5Lækir gleðinnar streyma frá borg Guðs – frá heilögum bústað Guðs hins hæsta. 6Hér býr Guð, hún mun ekki haggast. Þegar þörf er á, kemur Guð henni til hjálpar. 7Þjóðir risu upp og létu ófriðlega en þegar Guð talaði varð heimurinn að þagna og jörðin nötraði.
8Drottinn, hann sem ræður hersveitum himinsins, er hér! Hann er á meðal okkar! Hann, Guð Jakobs, er kominn til að hjálpa.
9Komið og sjáið máttarverk hans á jörðinni. 10Hann stöðvar styrjaldir um víða veröld, brýtur vopnin og kastar á eld.
11„Þögn! Standið kyrr! Vitið að ég er Guð! Allar þjóðir heims syni mér lotningu.“
12Drottinn hersveita himinsins er hér, hann er á meðal okkar! Hann, Guð Jakobs, er hér til að frelsa!