1-2 Ég vil lofa Drottin öllum stundum, vegsama hann seint og snemma. 3Ég hrósa mér af Drottni. Hinir hógværu hlusta og öðlast nýjan kjark. 4Lofið Drottin ásamt mér, tignum í sameiningu nafn hans.
5Ég hrópaði til hans og hann svaraði mér, frelsaði mig frá öllu því sem ég hræddist. 6Lítið til hans og gleðjist og þið munuð ekki verða til skammar.
7Ég var vesæll og aumur, en ég hrópaði til Drottins. Drottinn heyrði hróp mitt og frelsaði frá öllu því sem ég hræddist. 8Engill Drottins stendur vörð um þá sem óttast hann, og hann bjargar þeim.
9Finndu og sjáðu hve Guð er góður! Sæll er sá sem leitar hælis hjá honum. 10Treystið Drottni og sýnið honum lotningu – óttist hann – því að þeir sem óttast hann líða engan skort. 11Ung ljón búa við skort en þeir sem leita Drottins fara einskis góðs á mis.
12Börnin góð, komið og ég mun kenna ykkur að óttast Drottin. Það er mikilvægt. 13Viljið þið lifa langa og góða ævi? 14Gætið þá tungu ykkar! Segið aldrei ósatt orð. 15Haldið ykkur frá öllu illu og ástundið það sem gott er. Reynið að lifa í sátt við aðra menn og keppið eftir friði.
16Því að augu Drottins hvíla á hinum réttlátu og hann hlustar eftir bænum þeirra. 17En öllum óguðlegum mun Drottinn eyða og afmá minningu þeirra af jörðinni. 18Þegar réttlátir hrópa, þá heyrir Drottinn og frelsar þá úr nauðum. 19Já, Drottinn er nálægur öllum þeim sem hafa auðmjúkt hjarta. Hann frelsar þá sem í einlægni og auðmýkt iðrast synda sinna. 20Góður maður kemst oft í vanda – fær sinn skammt af mótlæti – en Drottinn á lausn við öllu slíku. 21Jafnvel gegn slysum verndar Drottinn hann.
22Ógæfan eltir og drepur óguðlegan mann og þeir sem hata réttláta bíða síns dóms. 23En Drottinn frelsar líf þjóna sinna. Enginn sem leitar hælis hjá honum verður dæmdur sekur.